Valskonur Íslandsmeistarar eftir sigur í Eyjum
Egill Bjarni Friðjónsson

ÍBV tók á móti Val í fjórða leik liðanna í einvígi þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna í Vestmannaeyjum í kvöld.

ÍBV unnu frábæran sigur á Val í þriðja leik liðanna í kvöld og þurftu á sigri að halda til að halda lífi í einvíginu, annars myndi Valur fagna Íslandsmeistaratitlinum,

Valur byrjaði leikinn betur og náði þriggja marka forskoti en ÍBV voru snöggar að vinna það upp og jafna leikinn þegar um 15 mínútur voru búnar af fyrri hálfleik. Birna Berg vaknaði um miðbik hálfleiksins og skoraði þrjú mörk í röð og kom ÍBV yfir. Valur náði að jafna leikinn í 15-15 þegar stutt var til hálfleiks en það var ÍBV sem átti síðasta markið í fyrri hálfleik og leiddu 16-15 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Valskonur komu sterkar til leiks í síðari hálfleik og var Hafdís í miklum ham í markinu hjá þeim. Valur skoraði fimm fyrstu mörkin í síðari hálfleik og breytti stöðunni í 16-20. Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, tók þá leikhlé og ÍBV tóku við sér eftir það og minnkuðu muninn í tvö mörk en Valskonur hleyptu þeim ekki nær.

Þegar 7 mínútur voru eftir náðu ÍBV að minnka muninn í eitt mark, 23-24 og höfðu tækifæri á að jafna leikinn en tókst það ekki og Valskonur náðu aftur undirtökunum og komust þrem mörkum yfir, 23-26, þegar þrjár mínútur voru eftir.

Valskonur unnu að lokum fjögurra marka sigur, 26-30 og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn verðskuldað. Þær eru því handhafar allra þriggja titlanna í ár en þær unnu einnig bikarmeistaratitilinn og deildarmeistaratititlinn.

Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Lovísa Thompson voru markahæstar hjá Val í kvöld með 6 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir markahæst með 12 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top