Nýliðar Víkings í Olís-deild kvenna hafa fengið til sín leikmann frá ÍR en Guðrún Maryam Rayadh hefur samið við félagið. Guðrún Maryam gerir tveggja ára samning við Virkis-liðið. Guðrún sem er uppalin hjá HK gekk í raðir ÍR og lék með liðinu undanfarin ár en lék á láni hjá Fjölni í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð. ,,Hún er fjölhæfur leikmaður, getur leyst allar stöður fyrir utan en er einnig öflugur varnarmaður," segir í tilkynningunni frá félaginu. Guðrún skoraði ellefu mörk í tólf leikjum fyrir Fjölni í Grill66-deildinni. Á dögunum varð ljóst að Víkingur leikur í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð eftir að fjölgað var í deildinni úr átta liðum í tíu lið. Auk Víkings fékk Grótta einnig sæti í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.