Guðmunda gengur í raðir Hauka
Haukar

Línumaðurinn, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hefur samið við Hauka og gengur til félagsins frá Stjörnunni. Haukar tilkynntu þetta á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Í tilkynningunni segir að Guðmunda sem er uppalin í HK hafi samið við Hauka til næstu ára. Guðmunda sem verður 19 ára í júlí hefur leikið með Stjörnunni síðustu tvö tímabil auk þess að leika með yngri landsliðum Íslands.

Í vetur skoraði hún 36 mörk í 21 leik fyrir Stjörnuna. Guðmunda hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands en í sumar mun hún fara með landsliði Íslands til Kína til að taka þátt á heimsmeistaramóti U-20 ára liða.

,,Þess má geta að Guðmunda fetar nú í fótspor móður sinnar en móðir hennar Auður Hermannsdóttir lék með Haukum á árunum 1995 til 2001. Hún varð Íslandsmeistari með liðinu í þrígang ásamt því að verða bikarmeistari tvisvar sinnum og deildarmeistari í eitt skipti. Það er alltaf ánægjulegt þegar ungar og efnilegar handknattleiksstelpur skrifa undir samninga við félagið og mikilvægt fyrir framtíð félagsins en þetta er liður í því að halda áfram að keppast um alla þá titla sem í boði eru," segir í tilkynningunni frá Haukum.

Fyrr í dag greindi Handkastið frá því að markvörðurinn, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir væri að ganga í raðir Hauka frá Stjörnunni.

Guðmunda er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Hauka fyrir næsta tímabil en Berta Rut Harðardóttir gengur í raðir Hauka frá Kristianstad.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top