Thea Imani Sturludóttir var tilkynnt á dögunum sem nýr leikmaður rúmenska liðsins, Craiova en hún samdi við liðið til tveggja ára eða til ársins 2028. Thea Imani hefur glímt við meiðsli nánast allt tímabilið og hefur til að mynda ekkert komið við sögu í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV en Valur leiðir í einvíginu 2-1 en liðin mætast í fjórða leik, á morgun í Vestmannaeyjum. Samkvæmt heimildum Handkastsins er Valur nú í óða önn í að reyna fylla skarð Theu Imani fyrir næstu leiktíð og hefur Dagmar Guðrún Pálsdóttir leikmaður Fram verið orðuð við Val að undanförnu. Dagmar Guðrún rennur út af samningi hjá uppeldisfélagi sínu Fram í sumar en Fram fékk á dögunum Lenu Margréti Valdimarsdóttur til sín eftir eins árs dvöl í Svíþjóð, hjá Skara. Bæði Valur og ÍR sóttust eftir kröftum Lenu Margrétar en Lena ákvað að lokum að velja sitt uppeldisfélag Fram. Dagmar Guðrún var algjör lykilmaður í sóknarleik Fram í Olís-deildinni í vetur en hún var sjötti markahæsti leikmaður liðsins með 74 mörk, fiskaði 26 víti og gaf 41 stoðsendingu. Dagmar lék á láni hjá ÍR tímabilið 2024/2025.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.