Nokkur félög hafa áhuga á Cots
Egill Bjarni Friðjónsson

Britney Cots leikmaður við ÍBV rennur út af samningi í sumar og hefur henni verið sýndur áhugi frá liðum í Olís-deildinni.

Britney Cots var lykilmaður varnarlega hjá ÍBV í vetur sem endaði í 2.sæti bæði í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni og þá fékk hún aukið hlutverk sóknarlega þegar leið á tímabilið.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa bæði Valur og Fram áhuga að fá Cots í sínar raðir fyrir næstu leiktíð og þá hafa Haukar einnig sýnt henni áhuga en Britney gekk í raðir ÍBV frá Stjörnunni sumarið 2023 og var því að klára sitt þriðja tímabil með ÍBV á dögunum þegar liðið tapaði gegn Val í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins. 

ÍBV hefur einnig áhuga á að halda leikmanninum og hefur Cots samkvæmt heimildum Handkastsins fengið samningstilboð frá ÍBV.

Cots hefur leikið hér á landi síðan árið 2018 og en hún lék þrjú tímabil með FH áður en hún skipti yfir til Stjörnunnar sumarið 2021.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top