
Davíð Georgsson hefur verið ráðin þjálfari kvennaliðs ÍR og gerir hann samning til næstu tveggja ára. Tekur Davíð við liðinu af Grétari Áka Andersen sem óvænt var sagt upp störfum eftir tímabilið þrátt fyrir góðan árangur. Þetta er tilkynnt á samfélagsmiðlum ÍR. ,,Davíð þekkja allir ÍR-ingar enda var hann fyrirliði meistaraflokks karla í áraraðir og er einn leikjahæsti leikmaður félagsins. Hann hefur undanfarin ár þjálfað í yngri flokkum félagsins við góðan orðstír." Í tilkynningunni frá ÍR segir að annar ÍR-ingur, Björgvin Þór Hólmgeirsson verði honum til halds og trausts. ,,Saman léku þeir Davíð saman upp alla yngri flokka félagsins sem og meistaraflokki og urðu meðal annars bikarmeistarar árið 2013. Stjórn handknattleiksdeildar bindur miklar vonir við ráðningu Davíðs og Björgvins enda heimamenn sem blæða bláu og hvítu." Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastins átti Guðmundur Helgi Pálsson að taka við kvennaliði ÍR en eftir samræður við leikmannahóp ÍR hafi verið hætt við það. Guðmundur Helgi afþakkaði að taka við kvennaliði Aftureldingar í millitíðinni en hann hafði þegar verið byrjaður að vinna bakvið tjöldin og leita sér að aðstoðarþjálfara á kvennaliði Aftureldingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.