
Markvörðurinn, Elísa Helga Sigurðardóttir sem leikið hefur með Haukum í Olís-deild kvenna undanfarin ár er samkvæmt heimildum Handkastsins að ganga í raðir ÍR. Fyrr í dag tilkynntu Haukar að Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir væri gengin í raðir félagsins frá Stjörnunni og nefndu þar að þar myndi hún vera í markvarðarteymi með Söru Sif Helgadóttur og Erlu Rut Viktorsdóttur. Elísa sem er fædd árið 2005 og var á sínum tíma í yngri landsliðum Íslands var samningsbundinn Haukum út þetta tímabil en hún var varamarkvörður á eftir Söru Sif síðustu tvö tímabil. Kvennalið ÍR er enn þjálfaralaust eftir að Grétari Áka Andersen var sagt upp störfum óvænt eftir frábæran árangur með liðið á sínu fyrsta ári með liðið. Fjórir markverðir léku með ÍR í Olís-deild kvenna á leiktíðinni sem var að ljúka og nú bætist Elísa Helga við hópinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.