Landsliðsþjálfarinn segir framkomu stuðningsmanna ÍBV ömurlega
Ina FASSBENDER / AFP

Arnar Pétursson þjálfari kvennalandsliðs Íslands hefur tjáð sig um uppákomuna í öðrum leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn sem Valur vann að lokum 3-1 í Vestmannaeyjum í vikunni.

Í pistli sínum gagnrýnir hann harðlega framkomu stuðningsmanns / sveitar ÍBV í garð landsliðsmarkvarðarins Hafdísar Renötudóttur og markvarðar Vals. Það má geta þess að Arnar Pétursson er Eyjamaður í húð og hár og býr í Vestmannaeyjum. Þá þjálfaði hann karlalið félagsins til margra ára.

Hann kallar eftir viðbrögðum vegna bakslags í réttindabaráttu minnihlutahópa hérlendis.

Alvarlegt atvik átti sér stað í öðrum leik ÍBV og Vals sem fór fram í Vestmannaeyjum þegar stuðningsmenn ÍBV létu niðrandi köll dynja á Hafdísi. 

Atvikið sem um ræðir átti sér stað á 32. mínútu leiksins þegar heyra mátti stuðningsmenn ÍBV hrópa: „Hafdís fílar skæri“, sem vísar til kynlífs tveggja kvenna. Landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Vals, Hafdís Renötudóttir er samkynhneigð. Ummælin vöktu mikla reiði meðal leikmanna og aðstandenda Vals en þau eru talin bæði niðrandi, ósmekkleg og skýr dæmi um fordóma í garð samkynhneigðra.

Hafdís tjáði sig í fyrsta skipti um málið í Instagram færslu sinni í gær.

,,Hinsegin fólk verður fyrir aðkasti á hverjum degi og ég er hvorki sú fyrsta né síðasta sem upplifir það.
Þetta úrslitaeinvígi braut mig. Ég mætti samt,"
 skrifar Hafdís undir Instagram færslu sinni.

Pistill Arnars á Facebook-ar síðu sinni má sjá hér:

Til hamingju Valsstelpur með vel verðskuldaðan titil.

Þessi ömurlega framkoma stuðningsmannasveitar ÍBV sem veittist að leikmönnum Hauka og Vals með niðrandi hætti, líkamssmánun og ósmekklegum fordómum í garð samkynhneigðra er svartur blettur á annars flottri úrslitakeppni. Þessi hegðun er óásættanleg.

Hér þarf að bregðast við. Við sem samfélag höfum á ákveðin hátt brugðist.

Eftir áratuga árangur í jafnréttismálum hefur orðið bakslag í baráttu minnihlutahópa. Hatursorðræða, þar sem ráðist er að einstaklingi eða hópi á grundvelli kynþáttar, litarhafts, trúar, kyns eða kynhneigðar er því miður vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi þökk sé ákveðnum pólitískum öflum og lýðskrumurum.

Við þurfum að þora að taka slaginn gegn þessum öflum sem ala á ótta og tryggja að raddir samkenndar, jafnréttis og frelsis nái í gegn.

Því þrátt fyrir bakslag er Ísland ennþá fallegt og frjálslynt samfélag.

Gerum okkar besta til að halda því þannig.

Út með hatrið – inn með ástina

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top