
Matthildur Lóa Baldursdóttir hefur gengið í raðir Aftureldingar en félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Matthildur Lóa gerir tveggja ára samning við Aftureldingu. Matthildur gengur í raðir félagsins frá Fjölni en bæði lið leika í Grill66-deildinni. ,,Matthildur er 19 ára gömul og kemur í Mosfellsbæinn frá nágrönnum okkar í Fjölni en hún er gríðarlega metnaðarfullur leikmaður sem spilar sem skytta og er frábær varnarmaður. Við erum stolt af því að Matthildur hafi ákveðið að semja við Aftureldingu og ætli að taka þátt í þeirri vegferð og uppbyggingu sem er framundan," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Sebastian Alexandersson tók við liðinu á dögunum en Afturelding hefur verið að styrkja sig fyrir átökin á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.