
Vinstri hornamaðurinn, Guðrún Ásta Magnúsdóttir hefur samið við Val. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum um helgina. Guðrún Ásta sem er fædd árið 2008 varð í gær Íslandsmeistari með 3.flokki kvenna Vals en hún er uppalin hjá HK en er á sínu öðru ári hjá Val. ,,Guðrún Ásta kemur inn í hópinn með mikinn kraft, keppnisskap og vilja til að leggja sitt af mörkum bæði innan vallar og utan. Hún passar vel inn í þá menningu sem við viljum byggja upp hjá Val, þar sem vinnusemi, liðsheild og metnaður eru í fyrirrúmi. Guðrún Ásta hefur verið af mikilvægur hluti af 3. flokki og U-liði Vals og verið reglulega í æfingahóp meistaraflokksins auk þess að hafa tekið þátt í nokkrum leikjum með meistaraflokknum á síðastliðnu tímabili. Þá hefur Guðrún Ásta einnig verið valin í æfingahópa yngri landsliða," segir í tilkynningunni frá Val. Guðrún Ásta lék með Val 2 í Grill66-deildinni í vetur og var fimm sinnum í hóp með Val í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.