Markvörðurinn Sara Xiao hefur gengið í raðir Fjölnis í Grill66-deildinni en hún kemur til félagsins frá Selfossi. Sara sem er uppalin í Fram er fædd árið 2004 og hefur komið víða við á ferlinum en hún hefur meðal annars leikið með FH og Gróttu á ferlinum. ,,Hún er öflugur markvörður sem hefur vakið athygli fyrir öryggi sitt í markinu, góð viðbrögð og mikinn metnað," segir í tilkynningunni frá Fjölni. Halldór Torfi Pedersen, í meistaraflokksráði kvenna, er einstaklinga ánægður með að hafa landað Söru. ,,Við teljum Söru passa einstaklega vel inn í ungan og metnaðarfullan hóp félagsins og bindum miklar vonir við framlag hennar á komandi tímabilum.“ Sara sjálf er spennt fyrir nýjum kafla hjá Fjölni: „Ég er mjög spennt að vera að koma í Fjölni og fá að takast á við nýjar áskoranir.“ Signý Pála varði mark Fjölnis á síðustu leiktíð en hún er flutt erlendis í nám og er Sara því ætlað að fylla hennar skarð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.