
Arna Sif Jónsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Fram en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun. Arna Sif sem er fædd árið 2009 gekk í raðir Fram frá uppeldisfélagi sinu Val, fyrir tímabilið og lék með Fram bæði í Olís-deild kvenna sem og í Grill66-deildinni. Þá lék hún einnig með 3.flokki Fram í vetur og verður gjaldgeng þar næstu tvö árin. ,,Það er sönn ánægja að segja frá því að Arna Sif er búin að framlengja samninginn sinn við Fram. Arna lék mjög vel á liðnu tímabili á þremur vígstöðum og hefur þrátt fyrir ungan aldur stimplað sig rækilega inn í meistaraflokkinn. Við er virkilega spennt að sjá áframhaldandi þróun og framfarir hjá Örnu og erum mjög ánægð að halda henni lengur hjá okkur hér í Úlfarsárdalnum," segir í tilkynningunni frá félaginu. Arna Sif myndar markvarðarpar með landsliðsmarkverðinum, Ethel Gyðu Bjarnason.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.