
Inga Dís Axelsdóttir hefur framlengt samning sinn við Selfoss. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun. ,,Inga Dís er fjölhæfur leikmaður, jafnt í vörn og sókn sem hefur bætt sig mikið undanfarin misseri. Hún er á átjánda aldursári og hefur verið hluti af meistaraflokki undanfarin tvö tímabil. Þá hefur hún einnig leikið lykilhlutverk í 3. flokki undanfarin ár," segir í tilkynningunni frá Selfossi. Inga Dís skoraði fjögur mörk í 16 leikjum í Olís-deild kvenna í vetur en Selfoss féll niður í Grill66-deildina eftir harða fallbaráttu við Stjörnuna. ,,Handknattleiksdeild Selfoss er gríðarlega ánægð með undirritunina og erum við spennt að sjá Ingu Dís halda áfram að vaxa í vínrauðu treyjunni næstu árin."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.