Eva Björk Davíðsdóttir hefur skrifað undir samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Eva Björk kemur frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið undanfarin sex ár og verið fyrirliði. Hún lék einnig með Sola HK í Noregi, Ajax København í Danmörku og Skuru IK í Svíþjóð á árunum 2016-2020. Að auki hefur Eva Björk einnig leikið með Íslenska A-landsliðinu. Eva Björk er uppalin á Seltjarnarnesi og fædd árið 1994. Hún lék upp alla yngri flokkana hjá Gróttu og svo var hún mikilvægur hlekkur þegar Grótta varð Íslands, deildar og bikarmeistarari 2015 og einnig Íslandsmeistarari 2016. "Það er frábært þegar þegar Gróttufólk kemur aftur á Nesið. Eva er frábær karakter sem mun hjálpa Gróttu í þeirri uppbyggingu sem liðið er í. Við fögnum komu Evu og hlökkum til að sjá hana á parketinu í Hertz-höllinni" sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu í tilkynningu frá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.