
Örvhenti hornamaðurinn Eva Lind Tyrfingsdóttir hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Selfoss. Eva Lind er sextán ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur lék hún stórt hlutverk í meistaraflokki í vetur. Hún hefur einnig verið lykilleikmaður í yngri landsliðum Íslands og í 3. flokki Selfoss undanfarin ár. "Handknattleiksdeildin fagnar þessum nýja samningi og erum við spennt að sjá Evu Lind í vínrauðu áfram næstu árin" segir í tilkynningu frá Selfoss í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.