Fyrirliði kvennaliðs Stjörnunnar undanfarin ár, Eva Björk Davíðsdóttir verður ekki áfram í Garðabænum. Þetta tilkynnti hún í færslu á Instagram síðu sinni í gærkvöldi. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins er Eva Björk á leið heim í uppeldisfélag sitt Gróttu sem verða nýliðar í Grill66-deildinni en Stjarnan hafði betur gegn Gróttu í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni. En eftir að ákveðið var að fjölga í Olís-deildinni úr átta liðum í tíu lið þá fékk Grótta og Víkingur sæti í Olís-deildinni. Eva Björk hefur leikið með Stjörnunni undanfarin sex ár eftir að hafa leikið með Ajax í Danmörku, Skuru IK í Svíþjóð og Sola Handball í Noregi. Eva Björk hóf meistaraflokksferil sinn hjá Gróttu og varð til að mynda Íslandsmeistari með liðinu 2015 og 2016 auk þess að verða bikarmeistari árið 2015. ,,6 tímabilum lokið í Stjörnubláu. Þakklát fyrir þennan tíma þar sem skiptust á skin og skúrir, hlátur og grátur. Það eru svo mikil forréttindi að fá að vera hluti af svona hópi - takk öll sem eitt! Nú er komið að næsta kafla og nýjum ævintýrum sem ég er spennt að takast á við," skrifaði Eva Björk á Instagram síðu sinni. Eva er fimmti leikmaðurinn sem yfirgefur Stjörnuna eftir tímabilið en áður hefur verið tilkynnt að Hanna Guðrún Hauksdóttir hafi skipt yfir í Fram, Rakel Dóróthea Ágústsdóttir í Aftureldingu og þá fóru þær Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir og Guðmunda Auður Guðjónsdóttir í Hauka. Þá hefur einnig verið greint frá því að bæði Sara Katrín Gunnarsdóttir og Natasja Hammer eru óléttar og missa af byrjun tímabilsins hjá Stjörnunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.