Kvennalið Stjörnunnar hefur samið við danska markvörðinn Sara Schrøder Winde sem gengur í raðir félagsins frá sænska úrvalsdeildarliðinu, Skövde. Sara sem er fædd árið 2005 er uppalin hjá danska stórliðinu Team Esbjerg en gekk í raðir Skövde fyrir síðustu leiktíð. ,,Sara er afar öflugur markmaður með mikinn metnað og mikla útgeislun. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar öðlast dýrmæta reynslu úr sterku umhverfi bæði í Danmörku og Svíþjóð sem mun nýtast Stjörnunni vel," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Er Söru ætlað að fylla skarð Hrafnhildar Önnu Þorleifsdóttur sem gekk á dögunum í raðir Hauka, fyrir hjá Stjörnunni er Margrét Einarsdóttir. ,,Það er mikið ánægjuefni að fá Söru til félagsins og erum við sannfærð um að hún eigi eftir að styrkja hópinn mikið á komandi árum. Við bjóðum Söru hjartanlega velkomna í Garðabæinn og hlökkum til að sjá hana í bláu treyjunni næstu tvö tímabil," segir ennfremur í tilkynningunni. Miklar breytingar hafa orðið á kvennaliði Stjörnunnar frá síðustu leiktíð en liðið tryggði veru sína í deild þeirra bestu eftir sigur gegn Gróttu í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni eftir sigur í oddaleik. Í kjölfarið var síðan fjölgað í úrvalsdeild kvenna í 10 lið úr átta. Sara er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar en áður hafði Trude Håkonsen frá KA/Þór og unglingalandsliðsleikmaðurinn, Valgerður Elín Snorradóttir gengið í raðir liðsins frá Víking.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.