Emelía Ósk framlengir á Selfossi
Sævar Jónasson

Línumaðurinn, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir sem gekk til liðs við Selfoss fyrir síðasta tímabil hefur að framlengt samningi sínum við félagið. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Selfoss féll úr Olís-deildinni og leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Emelía Ósk er átján ára gömul og hafði leikið með Fjölni alla sína ævi þar til hún skipti yfir til Selfoss. Hún lék stórt hlutverk bæði í vörn og sókn Selfossliðsins í vetur. Emelía Ósk hefur undanfarin ár verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og er í keppnishópi 20 ára landsliðsins sem tekur þátt í HM í Kína í sumar.

Í tilkynningunni segir að Emilía sé spennt fyrir komandi vetri með Selfossi og er Handknattleiksdeild Selfoss einnig spennt að fylgjast með Emelíu halda áfram að bæta sig í vínrauðu treyjunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top