
Íslendingaliðin í Portúgal voru í eldlínunni í gærkvöldi þegar lokaumferð úrslitakeppninnar í Portúgal fór fram. Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur í liði Sporting og skoraði fimm mörk í tólf marka sigri liðsins gegn Benfica. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica í leiknum í gær en samningur hans við félagið rennur út í sumar og óvíst hvað er framundan hjá vinstri hornamanninum. Sporting höfðu tryggt sér meistaratitilinn fyrir leikinn í gegn en Porto endaði í 2.sæti, níu stigum munaði á liðunum. Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði síðan eitt mark í sannfærandi sigri Porto gegn Águas Santas. Porto vann með 13 mörkum 42-29. Antonio Llamazares var markahæstur með 15 mörk í liði Porto.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.