Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar hans í Kadetten Schaffhausen hófu úrslitaeinvígið á tapi í gær. Kadetten Schaffhausen tóku á móti HC Kriens-Luzern á heimavelli í gær og töpuðu með fjórum mörkum 37-33 eftir að hafa verið fjórum mörkum yndir í hálfleik 17-13. Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten með níu mörk þar af var eitt þeirra úr vítakasti. Kadetten voru aldrei líklegir að snúa blaðinu sér í vil og náðu gestirnir í tvígang sjö marka forystu í seinni hálfleik. Er þetta annar sigur HC Kriens-Luzern á Kadetten í röð en liðið hafði einnig betur í seinni leik liðanna í deildinni, 33-27. Næsti leikur liðanna fer fram á miðvikudagskvöld en þrjá sigra þarf til þess að verða meistari. Kadetten Schaffhausen eru ríkjandi meistarar síðustu fjögurra ára en í tvö skipti af þessum fjórum hefur liðið unnið HC Kriens-Luzern í úrslitaeinvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.