Botnlið þýsku úrvalsdeildarinnar, DhfK Leipzig tilkynnti í morgun að Blær Hinriksson hafi framlengt samningi sínum við félagið og leikur með liðinu á næstu leiktíð. Einungis tvær umferðir eru eftir af þýsku Bundesligunni og allt bendir til þess að Leipzig leiki í þýsku B-deildinni á næstu leiktíð. Blær gekk í raðir félagsins frá Aftureldingu síðasta sumar og er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku. Blær gerir eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið sem er á botni deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti og þarf kraftaverk til að halda sæti sínu í deildinni. Á dögunum var Blær orðaður við danska úrvalsdeildarfélagið Bjerringbro/Silkeborg en nú er ljóst að ekkert verður úr því. Tveir aðrir leikmenn framlengdu samningi sínum við félagið á sama tíma en það eru þeir Luka Rogan frá Serbíu og Matej Klima frá Tékklandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.