Vinstri hornamaðurinn, Erla Sif Leósdóttir hefur gengið í raðir Stjörnunnar í Olís-deild kvenna frá Val. Þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum í morgun. Erla Sif sem er fædd árið 2007 gerir tveggja ára samning við Stjörnuna. ,,Erla er vinstri hornamaður með frábæran úlnlið og skemmtilegur slúttari sem kemur til með að styrkja okkar unga og flotta hóp mikið. Við erum virkilega ánægð að fá Erlu til félagsins og erum viss um að hún mun stimpla sig rækilega inn næstu tvö tímabil," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Erla Sif lék 16 leiki með Val 2 í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði tíu mörk auk þess að leika með 3.flokki Vals. Erla er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Stjörnunnar frá síðustu leiktíð en áður höfðu þær Trude Håkonsen, Sara Winde og Valgerður Elín Snorradóttir gengið í raðir félagsins sem hefur misst töluvert af leikmönnum í önnur lið og má búast við að liðið mæti með heldur breytt lið til leiks í Olís-deildina á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.