
Úlfar Páll Monsi Þórðarson komst ekki á blað meðal markaskorara í fimm marka tapi Alkaloid gegn RK Eurofarm Pelister í lokaleik sínum í úrvalsdeildinni í Norður-Makedóníu. Eurofarm Pelister unnu leikinn 31-26 og fóru þar með upp fyrir Ohrid í 2.sæti deildarinnar. Vardar tryggðu sér meistaratitilinn fyrir nokkru síðan og enduðu með átta stig forystu á toppi deildarinnar. Úlfar Páll sem gekk í raðir Alkaloid frá Val í sumar var einu sinni vikið af velli í leiknum í dag. Alkaloid hófu leikinn betur og komust í 3-0 og voru einnig þremur mörkum yfir í stöðunni 9-12 og 10-13. Staðan var hinsvegar 14-15 Alkaloid í vil í hálfleik. Heimamenn skoruðu hinsvegar tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks og komust þar með í fyrsta sinn í forystu í leiknum. Eftir það var ekki aftur snúið og unnu þeir að lokum fimm marka sigur eins og fyrr segir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.