Það er heldur betur komin upp óvænt staða í úrslitaeinvíginu um svissneska meistaratitilinn þar sem Kadetten Schaffhausen eru lentir 0-2 undir í einvíginu gegn HC Kriens-Luzern eftir tap í gærkvöldi. Kadetten Schaffhausen hafa orðið meistarar í Sviss síðustu fjögur tímabil en eru nú komnir með bakið upp við vegg. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk í leiknum í gær þar af þrjú úr vítaköstum en staðan var jöfn í hálfleik 20-20 í miklum markaleik. Jafnræði var með á liðunum allan fyrri hálfleikinn og aldrei munaði meira en einu marki á liðunum. Í seinni hálfleik náðu heimamenn í HC Kriens-Luzern góðum kafla í stöðunni 23-23 og breyttu stöðunni í 28-24. Óðinn Þór og félagar náðu aldrei að minnka það forskot niður og náðu heimamenn mest sex marka forskoti. Að lokum endaði HC Kriens-Luzern á að vinna leikinn með fimm mörkum 41-36. Næsti leikur í einvíginu fer fram á heimavelli Kadetten í Schaffhausen á laugardag. HC Kriens-Luzern getur tryggt sér svissneska meistaratitilinn með sigri þar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.