

Elmar Erlingsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf tvær stoðsendingar í eins marks tapi Nordhorn-Lingen á útivelli gegn Essen 35-34 í þýsku B-deildinni í kvöld. Essen voru þremur mörkum yfir í hálfleik 21-18 eftir að hafa leitt leikinn allan fyrri hálfleikinn. Það var engin breyting á því í seinni hálfleiknum þó svo að Nordhorn-Lingen hafi náð að jafna metin þrívegis í seinni hálfleik þá tókst liðinu aldrei að komast yfir í leiknum. Um var að ræða næst síðasta leik Nordhorn-Lingen á tímabilinu en liðið er í 5.sæti deildarinnar með 42 stig og ljóst að liðið fer ekki ofar í deildinni en það. Sigurinn var lífsnauðsynlegur fyrir Essen sem er í harðri fallbaráttu við Krefeld en Essen fer í 21 stig með sigrinum en Krefeld er í fallsæti með 18 stig en á leik til góða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.