Spáir því að Valur fari titlalaust í gegnum næsta tímabil
Baldur Þorgilsson

Í nýjasta þætti Handkastsins voru Stymmi klippari og Kristinn Björgúlfsson beðnir um að koma með sín "Hot take" eða umdeilda skoðun fyrir næstu leiktíð í Olís-deild karla og kvenna.

Ein af umdeildum skoðunum Stymma klippara var sú að kvennalið Vals sem eru ríkjandi Íslands, deildar og bikarmeistarar myndu fara í gegnum næsta tímabil án þess að vinna einn af þessum þremur titlum.

,,Kvennalið Vals vinnur ekki titil á næsta ári. Þær verða kannski meistarar meistaranna, ég tek það ekki með. Þær verða ekki deildar, Íslands eða bikarmeistarar. Ég held að titlarnir fari til Eyja og Ásvelli á næsta ári. Er ég í hafinu með þessa skoðun? Þetta er ungt og efnilegt lið og þær verða eflaust meistarar eftir tvö ár en ég held að þetta verður erfitt á næsta ári. Lovísa er að fara, Thea er farin, Lilja er farin, það eru einhverjar umræður að Hafdís Renötudóttir gæti farið út á meðan er ÍBV að styrkja sig.”

Hægt er að hlusta á nýjasta þátt Handkastsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top