Tvö ný lið hafa verið skráð til leiks á Íslandsmóti kvenna fyrir næsta tímabil en um er að ræða venslalið HK og Gróttu sem bæði verða nýliðar í nýrri 10 liða Olís-deild kvenna á næsta tímabili. Þar með er ljóst að átta lið verða í Grill66-deildinni á næsta tímabili líkt og var á síðustu leiktíð. Fjögur félög og fjögur venslalið. HK og Grótta enduðu í tveimur efstu sætum Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð en munu leika í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Bæði félög hafa því ekki getað sent venslalið til keppni í Grill66-deildinni á meðan þau hafa verið í Grill66-deildinni en með fjölgun liða í Olís-deildinni gafst Gróttu tækifæri að senda venslalið til keppni í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Eins og staðan er í dag eru þetta þau átta lið sem leika í Grill66-deildinni á næstu leiktíð: Selfoss, FH, Fjölnir, Afturelding, Valur 2, Fram 2, Grótta 2 og HK 2.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.