MT Melsungen vann fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins þegar liðið lagði THW Kiel að velli, 24-23, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar rétt í þessu. Leikurinn var gríðarlega jafn og spennandi frá upphafi til enda og réðst ekki fyrr en á lokasekúndunum. Melsungen byrjaði leikinn af mikilli áræðni og beitti 7 á 6 strax í fyrstu sókninni. Fyrsta mark leiksins kom frá Arnari Frey Arnarssyni, en varnarleikur og markvarsla voru í aðalhlutverki framan af. Kiel komst í 6-4 eftir ellefu mínútur, en Melsungen svaraði og jafnaði í 7-7 um miðjan fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að hafa forystuna það sem eftir lifði hálfleiksins. Nebojsa Simic átti þá nokkrar stórkostlegar vörslur fyrir Melsungen og Aron Mensing kom liðinu yfir, 12-11, þegar fjórar mínútur voru til leikhlés. Rétt fyrir hálfleik skoraði David Mandic og tryggði Melsungen 13-12 forystu í leikhléi. Melsungen hóf síðari hálfleikinn af krafti og komst í 15-13 og síðar 16-14. Kiel var þó aldrei langt undan og jafnaði í 17-17 þegar Harald Reinkind skoraði á 47. mínútu. Þrátt fyrir góð færi tókst hvorugu liðinu að ná afgerandi forskoti á lokakaflanum. Spennan náði hámarki á síðustu mínútunum. Florian Drosten kom Melsungen yfir 23-22 af vítalínunni tveimur mínútum fyrir leikslok. Simic varði síðan vítakast frá Lukas Zerbe og gaf sínum mönnum tækifæri til að klára leikinn. Kiel náði þó að jafna í 23-23 þegar aðeins mínúta var eftir. Roberto Garcia Parrondo tók þá leikhlé og lagði upp lokasókn Melsungen. Dainis Kristopans vann aukakast og fann David Mandic úti á hægri kanti, sem skoraði sigurmarkið, 24-23, þegar 14 sekúndur voru eftir. Kiel fékk eitt síðasta færi til að jafna, en Simic varði skot Domagoj Duvnjak og lokatilraun Eric Johansson úr aukakasti fór ekki í gegnum varnarvegg Melsungen. Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk fyrir Melsungen í dag en Reynir Þór Stefánsson sem leikur einning með Melsungen kom ekkert við sögu í leiknum í dag. Þar með var sögulegur sigur í höfn og MT Melsungen gat fagnað fyrsta titli félagsins frá stofnun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.