
Línumaðurinn, Tjörvi Týr Gíslason leikur sinn síðasta heimaleik fyrir félag sitt, Oppenweiler/Backnang í þýsku B-deildinni í dag þegar liðið tekur á móti Ludwigshafen í síðasta heimaleik félagsins á þessu tímabili. Tjörvi Týr yfirgefur félagið eftir eins árs dvöl en hann gekk í raðir nýliðanna frá Bergischer síðasta sumar. Með Bergischer fór Tjörvi Týr upp í þýsku Bundesliguna en það var önnur örlög sem biðu hans í ár þar sem liðið hefur ekki enn unnið leik í þýsku B-deildinni og situr á botni deildarinnar með tvö stig. Tjörvi Týr er einn af sex leikmönnum félagsins sem yfirgefa félagið í sumar. Tjörvi Týr hefur verið orðaður við heimkomu í sumar og gæti gengið í raðir uppeldisfélags síns, Val.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.