Elín Vilhjálmsdóttir hefur gengið í raðir Stjörnunnar frá Haukum. Þetta tilkynnti Garðabæjarliðið á samfélagsmiðlum sínum í morgun. Elín sem er fædd árið 2008 er uppalin í Garðabæ en hefur leikið með 3.flokki Hauka undanfarin tvö tímabil. Elín er enn gjaldgeng í 3.flokk kvenna. ,,Elín spilar sem skytta og sem leikstjórnandi ásamt því að vera góður varnarmaður. Hún kemur til með styrkja hópinn okkar og ýtir undir okkar stefnu að spila á uppöldum leikmönnum. Við erum gríðarlega sátt að fá Elínu aftur heim í Stjörnuna og bindum miklar vonir við hana í bláu treyjunni næstu tímabil," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Stjarnan endaði í 7.sæti Olís-deildar kvenna á síðustu leiktíð en vann umspilið um laust sæti í Olís-deildinni eftir sigra gegn FH og Gróttu. Nú hefur hinsvegar verið fjölgað í 10 liða Olís-deild kvenna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.