Susanne Pettersen hefur samið við ítalska félagið Handball Leno og yfirgefur þar með lið KA/Þórs þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Fyrst í Grill66-deildinni og nú síðast í Olís-deildinni en hún var markahæsti leikmaður liðsins bæði tímabilin. Susanne sem er norsk og fædd árið 1996 gekk í raðir KA/Þórs frá norska félaginu Pors. Hún skoraði 116 mörk fyrir KA/Þór í vetur sem voru nýliðar í Olís-deildinni og var þar með tíundi markahæsti leikmaður deildarinnar. Þá hefur Susanne einnig getið sér gott orð í strandhandbolta og leikið fyrir norska landsliðið í þeirri íþrótt . Í tilkynningunni frá Handall Leno segir að Susanne hefji æfingar með liðinu þegar liðið hefur undirbúning fyrir næsta keppnistímabil. Leno endaði í 6.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en tólf lið leika í deildinni. Liðið féll úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.