Paris Saint Germain hafa tryggt sér franska meistaratitilinn en það gerðu þeir um síðustu helgi eftir að hafa sigrað Nantes í rimmu tveggja efstu liða deildarinnar. Í gær vann Paris síðan nauman eins marks sigur á Sveini Jóhannssyni og félögum í Chambéry 28-29 á útivelli. Sveinn skoraði tvö mörk í leiknum og nýtti bæði skotin sín í leiknum. Elohim Prandi var markahæstur í liði Parísar með átta mörk og Luc Steins skoraði fimm. Jannick Green markvörður liðsins sem heldur til Danmerkur í sumar var með níu varin skot. Nú er aðeins ein umferð eftir af frönsku deildinni en Sveinn og félagar eru í 5.sæti deildarinnar sem gefur sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Saint-Raphael eru í 6.sæti deildarinnar með tveimur stigum minna en Chambéry en eiga leik til góða. Það dugar Sveini og félögum að vera með jafn mörg stig og Saint-Raphael til að enda í 5.sætinu og þar með tryggja sér sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Chambéry mætir Istres í lokaumferðinni en Istres er í fallsæti fyrir lokaumferðina en liðið hefur náð í fjögur stig í síðustu þremur leikjum og berst fyrir lífi sínu í deildinni. París sem mætir Tremblay í lokaumferðinni geta hinsvegar með sigri í þeim leik farið taplausir í gegnum deildarkeppnina en liðið hefur aðeins misstigið sig í einum leik er liðið gerði jafntefli gegn Nantes fyrir áramót. Þrátt fyrir frábæran árangur liðsins í deildarkeppninni hefur árangur liðsins í Meistaradeildinni og bikarkeppninni ekki verið eins góður og vonast var eftir og hefur Stefan Madsen þjálfari liðsins sem tók við liðinu í sumar verið gagnrýndur fyrir frammistöðu liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.