Norska handboltakonan Trude Hakonsen gekk í raðir Stjörnunnar frá KA/Þór í byrjun apríl. Hún lék með KA/Þór í eitt tímabil og skoraði 83 mörk í 21 leik á síðastliðnu tímabili. Þessi norski hornamaður sem líka getur leyst af skyttustöðuna kom upprunalega til KA/Þór frá Junkeren í Noregi. "Strax frá byrjun var fólkið í klúbbnum mjög almennilegt, vinalegt og hjálplegt. Þau sýndu mér bæinn, hjálpuðu mér að aðlagast og gerðu búferlaflutninga í nýtt land mun auðveldlegra. Ég var heppin að ég deildi íbúð með Susanne, sem var líka norskur leikmaður í félaginu. Það gerði allt miklu auðveldara og við smullum gríðarlega vel saman" "Við áttum nokkuð gott tímabil miðað við að vera nýliðar í deildinni. Við söfnuðum mikilvægum stigum í gegnum tímabilið og tryggðum sætið okkar í deildinni tiltölulega snemma. Það var líka flott að ná að komast í Final Four. Allt þetta gerðum við þrátt fyrir að berjast við þónokkur meiðsli í gegnum tímabilið. Deildarfyrirkomulagið var mun öðruvísi en ég hef áður vanist. 8 lið og þreföld umferð var áhugaverð upplifun og eitthvað sem ég bjóst ekki við" "Núna er ég flutt til Reykjavíkur og gengin í raðir Stjörnunnar og verð þar næstu 2 árin hið minnsta. Þetta er ungt lið með mörgum hæfileikaríkum leikmönnum og ég lít björtum augum á þetta tækifæri og allar áskoranir sem framundan eru. Æfingar eru nú þegar hafnar og ég hlakka til þegar mótið byrjar í haust"
Við heyrðum í Trude og fengum hana aðeins til að tjá sig um tímann norðan heiða og það sem framundan er hjá henni í Garðabænum með Stjörnunni.
"Þegar ég fyrst heimsótti Akureyri var það einnig mitt fyrsta skipti á Íslandi. 5 tíma keyrslan frá Keflavík til Akureyrar gaf mér tækifæri á að sjá þónokkuð mikið af landinu og fá góð fyrstu áhrif af landinu sem það svo sannarlega var"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.