Landsliðskonan, Elín Klara Þorkelsdóttir sem varð á dögunum sænskur meistari á sínu fyrsta ári með sænska félaginu Sävehof yfirgefur félagið eftir næstu leiktíð. Þetta staðfesti hún í samtali við Morgunblaðið. Elín Klara gekk í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu Haukum og gerði tveggja ára samning við félagið. Í samningnum var möguleiki á framlengingu um eitt ár í viðbót en Elín Klara hefur nú staðfest að hún muni ekki framlengja við sænska félagið eftir næsta tímabil. Elín Klara var valin besti leikmaður sænsku deildarinnar og fór á kostum með liðinu í vetur en liðið varð einnig deildarmeistari á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.