Eva Björk Davíðsdóttir gekk á dögunum til liðs við uppeldisfélagið sitt Gróttu eftir langa fjarveru en hún gekk til liðs við Gróttu eftir sex ár hjá Stjörnunni. Þar áður lék hún erlendis. Seinast spilaði hún í treyju Gróttu leiktímabilið 2015/2016. Eftir það lá leiðin næstu fjögur ár til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs þar sem hún lék samtals í fjögur ár. Svo lá leiðin í Garðabæinn þar sem hún lék síðastliðin sex ár þar á meðal sem fyrirliði. Við settum okkur í samband við Evu Björk og fengum hana til að tjá sig aðeins um vistaskiptin, síðustu 6 ár hjá Stjörnunni og hvernig hún sér fyrir sér næsta tímabil í Olís deild kvenna. ,,Ég horfi tilbaka á síðustu sex ár í Stjörnunni með ofboðslega miklu þakklæti. Gefandi, lærdómsríkur og umfram allt fáránlega skemmtilegur tími þar sem ég myndaði djúpar tengingar við félag og fólk og eignaðist vini til lífstíðar. Vil líka taka sérstaklega fram að það var haldið einstaklega vel utan um mig á tíma þar sem heimurinn hrundi og við fjölskyldan þurftum af einhverjum ástæðum, sem ég mun aldrei skilja, að kveðja pabba. Stuðningur, skilningur og kærleikur sem ég mun aldrei gleyma." Eva segir að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að yfirgefa Stjörnuna. ,,Það var ekki auðveld ákvörðun að fara en ég tel þetta vera rétta tímasetningu fyrir mig til þess að gera breytingar. Uppeldisfélagið kallaði og ég er mjög spennt fyrir þeirri miklu uppbyggingu sem er í gangi þar. Ég hlakka mikið til að koma inn í nýtt umhverfi og leggja mitt af mörkum til þess að liðið geti haldið áfram að taka skref upp á við. Þetta er öflugur hópur af stelpum með sterkt Gróttuhjarta og þær eiga bara eftir að verða betri." Hún segist spennt fyrir næsta tímabili en fjölgað hefur verið í Olís-deildinni úr átta liðum í tíu lið. Með fjölguninni fékk Grótta sæti í Olís-deildinni eftir að hafa tapað í umspilinu gegn Stjörnunni. ,,Ég held nú að mörg lið hafi ekki enn sungið sitt síðasta á leikmannamarkaðinum, en miðað við útlitið í dag stefnir í mjög jafna og spennandi deild á næsta tímabili og við munum sjá til þess að það verði ekki auðveld ferð fyrir neitt lið út á Nes í Hertz-höllina góðu," sagði Eva Björk Davíðsdóttir nýr leikmaður Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.