Besti markvörður Olís-deildarinnar síðustu ár og landsliðsmarkvörðurinn, Hafdís Renötudóttir hefur framlengt samningi sínum við þrefalda meistara Vals til ársins 2029. Frá þessu greinir Valur á samfélagsmiðlum sínum í dag. Hafdís gekk í raðir Vals frá Fram sumarið 2023 og var því að klára sitt þriðja tímabil með félaginu. Hafdís var á dögunum valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna á lokahófi Vals ásamt því að vera kosin besti markmaður Olís deildar kvenna. ,,Það gleður mig mikið að Hafdís hafi framlengt samning sinn við Val. Hún hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og býr yfir bæði hæfileikum og sterkum karakter. Ég er sannfærður um að hún eigi eftir að gegna áfram mikilvægu leiðtogahlutverki innan sem utan vallar og miðla sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins,“ sagði Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs Vals í tilkynningu Vals. Miklar breytingar verða á liði Vals fyrir næstu leiktíð en í morgun greindi Handkastið frá því að varamarkvörður liðsins, Elísabet Millý Elíasardóttir sé að ganga í raðir nýliða HK fyrir næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.