Haukur í liði umferðarinnar
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

33. Umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær með þremur leikjum. Að vana er gefið út lið umferðarinnar og er það Daikin handball sem velur það.

Konstantin Möstl(Lemgo)

Konstantin Möstl markvörður Lemgo átti góðan leik er lið hans sigraði Leipzig. Möstl varði 14 skot sem samsvaraði 45.2% hlutfallsmarkvörslu.

Marcel Schiller(Göppingen)

Marcel Schiller leikmaður Göppingen átti góðan leik er lið hans tapaði með eins marks mun gegn Stuttgart. Schiller skoraði 9 mörk og gaf eina stoðsendingu.

Simon Pytlick(Flensburg)

Daninn Simon Pytlick átti góðan leik er Flensburg unnu góðan sigur á Eisenach. Pytlick skoraði 11 mörk og gaf 2 stoðsendingar.

Haukur Þrastarson(Rhein-Neckar Löwen)

Haukur Þrastarson átti frábæran leik er Löwen vann dramatískan sigur á Hannover. Haukur skoraði 11 mörk og gaf 9 stoðsendingar.

Mathias Gidsel(Füchse Berlin)

Mathias Gidsel hægri skytta Füchse Berlin átti góðan leik er lið hans bar sigur af hólmi gegn Melsungen. Gidsel skoraði 9 mörk og gaf 4 stoðsendingar.

Frederik Bo Andersen(Hamburg)

Daninn Frederik Bo Andersen átti góðan leik er lið hans Hamburg vann góðan sigur á liði Wetzlar. Andersen skoraði 7 mörk og gaf eina stoðsendingu.

Jannik Kohlbacher(Rhein-Neckar Löwen)

Jannik Kohlbacher línumaður Löwen átti góðan leik er lið hans vann dramatískan sigur á Hannover. Kohlbacher skoraði 8 mörk í leiknum.

.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top