Markvörðurinn, Elísabet Millý Elíasardóttir hefur samkvæmt heimildum Handkastsins gengið í raðir nýliða HK í Olís-deild kvenna. Elísabet Millý sem er uppalin í Garðabænum hjá Stjörnunni gekk í raðir Vals sumarið 2024 og gerði tveggja ára samning við félagið sem rennur út í sumar og hún var því samningslaus. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins hefur hún nú ákveðið að skipta um félag og leika með HK í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Elísabet Millý hefur undanfarin ár verið í yngri landsliðum Íslands og verið talin ein af efnilegri markmönnum landsins. Fyrir hjá HK eru markmennirnir, Tanja Glóey Þrastardóttir og Danijela Sara B. Björnsdóttir sem stóðu vaktina í marki HK sem vann Grill66-deildina á síðustu leiktíð. Gera má ráð fyrir því að Elísabet Millý fái stærra hlutverk í liði HK heldur en í Val þar sem hún hefur verið varamarkvörður á eftir besta markverði landsins, Hafdísi Renötudóttur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.