Segir þetta gott eftir tíu tímabil með Haukum
Egill Bjarni Friðjónsson

Birta Lind Jóhannsdóttir vinstri hornamaður í liði Hauka undanfarin ár hefur ákveðið að leika ekki með liðinu á næstu leiktíð í Olís-deild kvenna og gott betur en það. Hún hyggst ekki ætla leika handbolta á næstu leiktíð.

Á lokahófi Hauka sem haldið var í lok maí var Birtu Lind þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og var ein af nokkrum liðsfélögum sínum frá síðustu leiktíð sem var kvödd.

Birta Lind staðfesti í samtali við Handkastið að hún ætlaði að segja þetta gott núna þar sem hún væri í krefjandi vinnu sem erfitt væri að púsla með handboltanum.

Birta sem er fædd árið 1999 hefur eins og fyrr segir leikið allan sinn feril með Haukum þar sem hún er uppalin. Hún varð bikarmeistari með liðinu á þar síðustu leiktíð. Hún var í litlu hlutverki með Hauka liðinu í vetur og skoraði hún 11 mörk í 28 leikjum á tímabilinu.

Hún var að ljúka sínu tíunda tímabili með Haukum í Olís-deild kvenna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top