Sveinn komst ekki á blað er liðið felldi Istres
FRISO GENTSCH / dpa Picture-Alliance via AFP

Línumaðurinn Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað í liði Chambéry í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar sem leikin var í kvöld.

Chambéry var í harðri baráttu um síðasta lausa sætið í Evrópudeildinni á næstu leiktíð við Saint-Raphael og þurfti á sigri að halda á meðan Istres var í harðri fallbaráttu við Chartres.

Það fór svo að Chambéry vann tveggja marka sigur 30-28 eftir að hafa verið 14-11 yfir í hálfleik. Chambéry endaði þar með í 5.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 37 stig en Saint-Raphael enduðu með jafn mörg stig en Chambéry var með betri innbyrðis stöðu á milli liðanna.

Istres og Dijon Féllu úr deildinni með 14 og 12 stig en Chartres bjargaði sér frá falli þrátt fyrir tap í lokumaferðinni með 15 stig.

Þetta var fyrsta tímabil Sveins með franska félaginu en hann gekk í raðir félagsins síðasta sumar frá Kolstad í Noregi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top