Lokaumferðin í þýsku B-deildinni fór fram í dag en það var nú hvorki spenna á toppi né botni deildarinnar. Balingen og Bietigheim höfðu fyrir umferðina tryggt sér sæti í þýsku Bundesligunni á næsta tímabili á meðan Krefeld og Oppenweiler/Backnang höfðu fallið niður um deild. Tjörvi Týr Gíslason lék sinn síðasta leik með botnliði Oppenweiler/Backang er liðið heimsótti Lübbecke heim. Heimaliðið hafði betur í leiknum með fimm mörkum 38-33 en Tjörvi Týr Gíslason fór mikinn í markaskorun gestanna og skoraði fimm mörk í leiknum úr fimm skotum. Tjörvi Týr rennur út af samningi við félagið í sumar og er á förum frá félaginu. Hann hefur verið orðaður við heimkomu í Val í sumar. Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk fyrir Nordhorn-Lingen sem vann auðveldan átta marka sigur á heimavelli gegn Krefeld 36-28. Nordhorn-Lingen voru ellefu mörkum yfir í hálfleik 21-10. Nordhorn enduðu í 6.sæti deildarinnar með 44 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.