Barcelona tryggði sér sæti í úrslitum spænsku bikarkeppninnar eftir öruggan 38-27-sigur á BM Nava í undanúrslitum keppninnar á laugardagskvöld. Liðið mætir Bidasoa Irun í úrslitaleik bikarkeppninnar á morgun en Bidasoa Irun vann Huesca í hinum undanúrslitaleiknum í dag, 37-30. Bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 15:00 á morgun. Leikurinn markaði tímamót fyrir BM Nava sem lék í fyrsta sinn í sögu félagsins í undanúrslitum bikarkeppninnar á Spáni. Carlos Ortega, þjálfari Barcelona, nýtti tækifærið til að dreifa álaginu innan leikmannahópsins Barcelona í leiknum í dag enda fyrirfram búist við erfiðari leik í bikarúrslitunum á morgun og þá leikur liðið einnig í Final 4 úrslitahelginni í Meistaradeildinni næstu helgi í Köln. Nokkrir lykilmenn fengu hvíld og aðrir sátu á bekknum allan leikinn. Barcelona hóf leikinn af krafti og komst fljótt í 3-0. Viktor Helgi Hallgrímsson stóð í rammanum hjá Barcelona og lék vel. Barcelona jók forskotið jafnt og þétt. Dani Fernández skoraði tíu mörk úr ellefu skotum og var valinn besti leikmaður vallarins. BM Nava náði um tíma að halda í við Evrópumeistarana og minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks. Barcelona fór þó með fjögurra marka forskot inn í leikhléið 21-17. Í síðari hálfleik tók Barcelona síðan öll völd á vellinum. Sex mörk í röð og átta mínútur án þess að Nava skoraði mark í leiknum gerði út um leikinn. Munurinn jókst úr þremur mörkum í níu og eftir það var sigur Barcelona aldrei í hættu. Dika Mem skoraði sex mörk fyrir Barcelona en Blaz Janc og Adrián Sola bættu við fimm mörkum hvor. Hjá BM Nava var Josu Arzoz markahæstur með átta mörk. Barcelona mætir Álaborg í undanúrslitum Meistaradeildarinnar næstkomandi laugardag í Lanxess Arena í Köln.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.