Óhætt að segja að þetta hafi verið fullkominn endir
SVEN HOPPE / AFP

Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe þar sem íslensku landsliðskonurnar, Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir léku með í þýsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili fögnuðu Þýskalandsmeistaratitilinum á dögunum eftir sigur á Dortmund í oddaleik úrslitaeinvígsins.

Blomberg-Lippe vann einvígið 2-1 eftir að hafa lent 0-1 undir í einvíginu en oddaleiknum lauk með öruggum sigri Blomberg-Lippe 30-26. Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk í leiknum en hún gekk til liðs við þýska félagið árið 2024.

Þetta var hennar síðasti leikur með félaginu en hún kemur heim til Íslands í sumar og gengur í raðir ÍBV í Olís-deild kvenna.

Í viðtali við Morgunblaðið á dögunum lýsti Andrea stemningunni í höllinni fyrir leik og á meðan á leik stóð.

,,Ég man í raun ekki eftir neinu sem gerðist í oddaleiknum sjálfum og þetta er allt í einhverri móðu. Ég man bara að keppnishöllin var full af fólki og fólk var mætt til að syngja og styðja löngu áður en leikurinn byrjaði. Allir stuðningsmennirnir stóðu allan tímann og stemningin var algjörlega ólýsanleg. Þetta minnti mig á einhverja Hollywood-bíómynd, þessi leikur og þessi dagur," sagði Andrea í viðtalinu við Morgunblaðið.

Hún sagði að sigurinn hafi í raun verið mjög sannfærandi.

,,Síðustu 30 sekúndur leiksins gat maður leyft sér að byrja að fagna og ég man bara að ég byrjaði að gráta. Þetta var auðvitað minn síðasti leikur á atvinnumannsferlinum, í bili í það minnsta, og það helltist aðeins yfir mig þarna í lokin. Ég hefði ekki viljað enda þetta öðruvísi og það er óhætt að segja að þetta hafi verið fullkominn endir," sagði Andrea meðal annars.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top