Gidsel langmarkahæstur – Tveir Íslendingar á meðal fimm efstu
Alex Nicodim / NurPhoto via AFP

Danski landsliðsmaðurinn, Mathias Gidsel sem leikur með Füchse Berlin varð markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með 317 mörk og var í sérflokki á markalistanum.

Það sem gerir afrek Gidsel enn athyglisverðara er að ekkert marka hans kom af vítalínunni. Hann skoraði öll 317 mörkin í opnum leik og var 62 mörkum á undan næsta manni á listanum, Kai Häfner hjá TVB Stuttgart.

Tveir Íslendingar voru meðal markahæstu leikmanna deildarinnar á tímabilinu. Ómar Ingi Magnússon hjá SC Magdeburg hafnaði í þriðja sæti með 226 mörk, þar af 86 úr vítaköstum, en Haukur Þrastarson hjá Rhein-Neckar Löwen varð fimmti með 212 mörk. Haukur var að klára sitt fyrsta tímabil í þýsku úrvalsdeildinni.

Rhein-Neckar Löwen átti tvo leikmenn á meðal tíu markahæstu manna deildarinnar, en auk Hauks var línumaðurinn Jannik Kohlbacher sjöundi á listanum með 207 mörk. Þá deildu Nicolaj Jörgensen hjá HSV Hamburg og Emil Jakobsen hjá SG Flensburg-Handewitt áttunda sætinu með 205 mörk hvor.

Tíu markahæstu leikmenn þýsku Bundesligunnar 2025/26

  1. Mathias Gidsel (Füchse Berlin) – 317 mörk
  2. Kai Häfner (TVB Stuttgart) – 255 mörk
  3. Ómar Ingi Magnússon (SC Magdeburg) – 226 mörk
  4. August Pedersen (TSV Hannover-Burgdorf) – 214 mörk
  5. Haukur Þrastarson (Rhein-Neckar Löwen) – 212 mörk
  6. Niels Versteijnen (TBV Lemgo Lippe) – 208 mörk
  7. Jannik Kohlbacher (Rhein-Neckar Löwen) – 207 mörk
  8. Nicolaj Jörgensen (HSV Hamburg) – 205 mörk
  9. Emil Jakobsen (SG Flensburg-Handewitt) – 205 mörk
  10. Noah Beyer (Bergischer HC) – 195 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top