Klukkan 16:00 á íslenskum tíma verður dregið í riðla fyrir Heimsmeistaramót karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar 2027. Drátturinn verður í beinu streymi á YouTube-rás IHF. Ísland tryggði sér farseðilinn á HM eftir frábæran árangur á Evrópumótinu síðastliðinn janúar, þar sem liðið hafnaði í 4. sæti eftir tap gegn Króatíu í leiknum um bronsið. Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður og ljóst er að Ísland leikur í H-riðli, sem verður leikinn í Magdeburg, en áframhaldandi þátttaka á mótinu verður í Hannover, þar sem milliriðill IV fer fram. Í efsta styrkleikaflokki eru meðal annars ríkjandi heimsmeistarar Danmerkur, gestgjafarnir Þjóðverjar, Ísland, Króatía, Portúgal og Svíþjóð ásamt Egyptalandi og Argentínu. Í öðrum styrkleika flokki eru stórþjóðir á borð við Frakkland, Spán, Noreg og Slóveníu ásamt Færeyjum, Ítalíu, Serbíu og Norður-Makedóníu. Því er ljóst að nokkrir afar sterkir riðlar gætu orðið til þegar dregið verður. Dráttinn er hægt að horfa á hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.