U16 ára kvennalandslið Íslands leikur um helgina tvo vináttulandsleiki gegn færeyska U16 ára landsliðinu hér á landi. Fara leikirnir fram á laugardag og sunnudag og verða leiknir í Virkinu í Safamýri. Leikurinn á laugardaginn hefst klukkan 15:00 og á sunnudaginn hefst leikurinn klukkan 13:30. Eru leikirnir hluti af undirbúningi liðsins fyrir Opna Evrópumótið sem fram fer í Gautaborg í byrjun júlí. Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum sem valdir voru af þeim Einari Jónssyni og Rakel Dögg Bragadóttur landsliðsþjálfurum en hópurinn var valinn í mars síðastliðinn. Anja Gyða Vilhelmsen Valur
Bjartey Hanna Gísladóttir Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir HK
Helga Jenný Vigfúsdóttir HK
Hrefna Dís Valgeirsdóttir Haukar
Katrín Ásta Jóhannsdóttir ÍR
Kristín Einarsdóttir HK
Matthildur Helga Ólafsdóttir Valur
Sara Sigurvinsdóttir Valur
Sara Sveinsdóttir Valur
Soffia Helen Sölvadóttir Grótta
Tanja Harðardóttir ÍBV
Tinna Dröfn Hauksdóttir HK
Þórhildur Káradóttir Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.