HSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðunina fyrir Grill66 - deild kvenna fyrir næstu leiktíð en átta lið taka þátt í Grill66-deildinni. Fjölgun varð í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð en tvö ný lið taka þátt í Grill66-deildinni á næstu leiktíð, HK 2 og Grótta 2. Selfoss sem féll úr Olís-deild kvenna á síðustu leiktíð fer í Lambhagahöllina og mætir Fram 2 í 1.umferðinni en Fjölnir, FH, Selfoss og Afturelding mæta öll venslaliðum í 1.umferðinni. Í 2.umferðinni fer fram stórleikur í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ þegar Afturelding fær FH í heimsókn en bæði lið ætla sér stóra hluti í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Líkt og á síðustu leiktíð verður leikin þreföld umferð eða alls 21 umferð í Grill66-deildinni. Hér að neðan má sjá fyrstu tvær umferðirnar í deildinni og þá er hægt að sjá alla leikjaniðurröðunina hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.