Guðmundur Bragi Ástþórsson hefur samið við austurríska félagið Bregenz fyrir komandi tímabil. Félagið hefur greint frá félagaskiptunum en Handkastið sagði frá því í vikunni að Guðmundur Bragi væri á leið til félagsins. Guðmundur Bragi sem er fæddur árið 2002 gengur í raðir Bregenz frá danska úrvalsdeildarfélaginu TMS Ringsted. Þar lék hann eitt tímabil en áður lék hann með Bjerringbro-Silkeborg í eitt tímabil. Guðmundur Bragi var á sínum yngri árum fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Á tímabilinu 2024–2025 skoraði hann 89 mörk fyrir Bjerringbro-Silkeborg, bæði í dönsku deildinni og Evrópudeildinni. Þaðan lá leiðin til TMS Ringsted áður en hann ákvað að taka næsta skref á ferlinum og semja við Bregenz. „Ég er mjög stoltur og ánægður með að vera á leið til Bregenz Handball. Þetta er félag með ríka hefð og sögu og ég hlakka mikið til að hefja leik og vinna leiki með liðinu,“ sagði Guðmundur Bragi í tilkynningu félagsins en Guðmundur Bragi er uppalinn í Haukum og lék með Haukum og Aftureldingu í Olís-deild karla áður en hann hélt út í atvinnumennsku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.