Füchse Berlin í úrslit annað árið í röð
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Füchse Berlin komust í úrslit Meistaradeildarinnar annað árið í röð eftir 40-35 sigur á Magdeburg í fyrri undanúrslitaleik dagsins.

Mathias Gidsel var allt í öllu í sóknarleik Berlínarrefanna og skoraði 9 mörk. Ómar Ingi Magnússon var atkvæðamestur hjá Magdeburg og skoraði hann einnig 9 mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 5 mörk en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað þrátt fyrir eina tilraun.

Füchse Berlin voru með yfirhöndina nær allan leikinn og voru alltaf skrefinu á undan í fyrri hálfleiknum. Um miðbik síðari hálfleiks leit út fyrir að Magdeburg væru að ná endurkomu og tókst þeim að jafna í stöðunni 29-29 og voru einu marki yfir næstu mínúturnar en þegar staðan var 33-32 fyrir Magdeburg skellti Milosavljev í lás og Mageburg tókst ekki að skora næstu 10 mínúturnar og voru þeir þá búnir að missa Berlin frá sér.

Hinum megin á vellinum náðu markmenn Magdeburg sér aldrei strik og má segja að það hafi orðið þeim að falli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top