Gísli Þorgeir lang stoðsendingahæstur í Meistaradeildinni
Ronny Hartmann / AFP

Það er komið að úrslitahelginni í Meistaradeild Evrópu, svokölluð Final 4 helgi í Köln. Magdeburg eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín á síðasta ári.

Ljóst er að við fáum ekki sama úrslitaleikinn í ár þar sem Magdeburg og Fuchse Berlín mætast í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Álaborg og Barcelona.

Sama hvernig leikir helgarinnar spilast má gera ráð fyrir því að Gísli Þorgeir Kristjánsson verði stoðsendingahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á þessu tímabili.

Fyrir leiki helgarinnar er hann stoðsendingahæstur með 74 stoðsendingar en næstur á eftir honum er Luc Steins, leikmaður PSG með 62 stoðsendingar. 

Simon Jeppsson leikmaður Kolstad er með 55 stoðsendingar ásamt Filip Kuzmanovski og Elohim Prandi. Francisco Costa kemur síðan með 54 stoðsendingar. Allir þessir leikmenn hafa lokið leik í Meistaradeildinni og munu því ekki gefa fleiri stoðsendingar á þessu tímabili.

Mathias Gidsel er næstur á eftir Gísla varðandi fjölda stoðsendinga sem verður í eldlínunni um helgina en Gidsel hefur gefið 53 stoðsendingar, 21 færri heldur en Gísli Þorgeir. 

Fyrri undanúrslitaleikurinn fer fram í dag klukkan 13:00 þegar Magdeburg og Fuchse Berlín mætast og Álaborg og Barcelona mætast í seinni leik dagsins.

Úrslitaleikurinn og leikurinn um 3.sætið fara síðan fram á morgun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top